Sigursteinn Arndal þjálfari FH var að vonum kampakátur eftir sigur liðsins gegn Haukum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins sem fram fór í Kaplakrika í kvöld. Sigursteinn sagði í viðtali við Handkastið eftir leik að það væri auðvelt að benda á að leikurinn hafi unnist á varnarleik og markvörslu en lokatölur voru 27-21 FH í vil eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. ,,Það er mjög auðvelt að benda á varnarleik og markvörslu en mér fannst líka frábær karakter og við héldum ró. Það hefði verið auðvelt að brotna í mómentum í leiknum en við vorum búnir að undirbúa okkur vel fyrir það að þessir leikir sveiflast mikið og við þurftum bara að halda okkur vinnu áfram." ,,Það er ólíkt að elta eða vera yfir en samt sem áður þá héldum við alltaf áfram þrátt fyrir að við vorum undir og við höfðum trú á okkar concepti og við höfðum trú á því að dugnaðurinn vinni á endanum og það gerði það í dag," sagði Steini Arndal. Lengra og ítarlegra viðtal við Sigurstein má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.