
Færeyska kvenna landsliðið tekur á móti því íslenska á miðvikudagskvöldið í Færeyjum í næst síðustu umferð undankeppni Evrópumótsins. Færeyska landsliðið er í dauðafæri að tryggja sér inn á annað Evrópumótið í röð. Færeyjar unnu það íslenska í Úlfarsárdalnum fyrir áramót. En liðið mætti Portúgal í síðasta landsliðsglugga þar sem færeyska landsliðið vann heimaleikinn en tapaði útileiknum. Súna Krossteig Hansen, einn af lykilmönnum færeyska landsliðsins segir að markmið liðsins sé skýrt, að tryggja sér sæti á EM. ,,Vörnin var góð og við fengum góða markvörslu en sóknarleikurinn var ekki nógu góður og við vorum ekki ánægðar með frammistöðuna gegn Portúgal,“ sagði Súna í viðtali við Portal.fo en Súna leikur með Skanderborg í dönsku úrvalsdeildinni. ,,Við erum mjög ákveðnar, vel undirbúnar og ætlum að gera okkar allra besta til að tryggja okkur sæti á EM síðar á árinu.“ Leikurinn á miðvikudaginn hefst klukkan 18:00 og með sigri gæti færeyska landsliðið verið komið langleiðina á EM þrátt fyrir að eiga eftir að mæta Svartfjallalandi í lokaumferðinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.