
Ungverski landsliðslínumaðurinn Miklós Rosta hefur skrifað undir tveggja ára samning við ungverskafélagið Pick Szeged og mun ganga til liðs við félagið sumarið 2026. Rosta hefur verið lykilmaður í ungverska landsliðinu og vakið athygli fyrir stöðugleika og líkamlega yfirburði. Með komu hans til Szeged er ljóst að félagið stefnir hátt, bæði heimafyrir og í Meistaradeildinni. Í tilkynningu frá Pick Szeged kemur fram að félagið sé afar ánægt með að fá leikmann með reynslu og gæði á borð við Rosta. „Hann mun styrkja varnarleik liðsins verulega og bæta nýjum víddum við sóknarleikinn,“ segir í yfirlýsingunni. Þá er einnig bent á að reynsla hans af alþjóðlegum mótum muni nýtast liðinu vel í krefjandi verkefnum komandi ára. Rosta lék með Pick Szeged á árunum 2019 til 2023 en hefur leikið með rúmenska liðinu Dinamo Bucuresti síðustu þrjú tímabil. Rosta sjálfur segist spenntur fyrir nýju áskoruninni. „Pick Szeged er stórt félag með metnaðarfull markmið. Ég hlakka til að taka næsta skref á mínum ferli og leggja mitt af mörkum til að ná árangri með liðinu,“ er haft eftir honum en hann segir að fókusinn hjá sér er að klára tímabilið með Dinamo Bucuresti en eftir það fer allur fókus á nýtt verkefni með Pick Szeged. Pick Szeged hefur um árabil verið eitt sterkasta lið Ungverjalands og fastagestur í Meistaradeild Evrópu. Með Pick Szeged leikur Janus Daði Smárason sem gengur í raðir Barcelona í sumar. Íslendingurinn, Arnar Freyr Theodórsson er umboðsmaður Miklós Rosta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.