Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins FH - Haukar (Þriðjudagur 19:30) / Sigurvegari: FH Viðureignin sem allir hafa beðið eftir. Nágrannaslagur af bestu gerð og vonandi verður þessi leikur meira spennandi en leikur Vals og KA í gær. Ég hef verið að bíða eftir því í allan vetur að FH sýni óstöðuleika hjá þessu unga liði en þeir eru bara of góðir til þess. Ég held þeir muni eiga fyrsta höggið á morgun og vera dyggilega studdir af stuðningsmönnum sínum í troðfullum Kaplakrika. Engar áhyggjur þó Haukafólk, við erum að fara að fá þetta einvígi í oddaleik svo þið munið vinna leiki líka.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.