
Trude hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna og kemur því til liðsins að norðan en hún lék með KA/Þór á tímabilinu sem er að líða og hefur hún sýnt hversu megnug hún er þar. Í tilkynningu hjá Stjörnunni segir að hún sé bæði dugleg og metnaðarfull og að hún passi vel í þá uppbyggingu sem Stjarnan leggi áherslu á.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.