
Handkastið greindi frá því á dögunum að HK-ingar væru í viðræðum við Dag Sverri Kristjánsson en samkvæmt heimildum Handkastsins hafa Víkingar bæst í kapphlaupið um þjónustu hans. Strákarnir í Handkastinu ræddu málefni Dags á dögunum og hvar hann myndi enda og setti Arnar Daði perssu á Styrmi og spurði hvaða ráð hann myndi gefa Degi ef hann þyrfti að velja milli þessara liða. Styrmir sagðist einungis hafa spilað undir stjórn annars þjálfarans svo það væri auðvelda svarið að velja Víking undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar. ,,Það er spennandi project í gangi hjá Víking meðan það er mikil endurnýjun hjá HK og við vitum kannski ekki alveg hverjir verða þar á næsta ári en Víkingar hafa aftur á móti alltaf farið lóðbeint niður og sagan er ekki með Víking í efstu deildinni en sögunni má hins vegar alltaf breyta." Einar Ingi Hrafnsson minntist einnig á að eftir hans bestu vitund þá vantaði Víkingum liðstyrk því yngri flokka starfið væri ekki alveg tilbúið eins og er að skila mönnum upp meistaraflokkinn þó það styttist í það. ,,Manni finnst því líklegt að Víkingar séu tilbúnir að hringja í Kára Árna og fá smá lán frá fótboltanum" Styrmir hélt áfram og sagði að hann teldi, horfandi utan frá á bæði félögin, að það væri meira stuð í Víking núna hafandi verið að tryggja sér sæti í efstu deild meðan HK væru að missa mikið af sínum uppöldum strákunum og meiri óvissa væri hvernig leikmannahópurinn yrði þar á næsta ári. Dagur Sverrir var einn af markahæstu leikmönnum Olís deildarinnar þegar hann lék með ÍR svo það er að ljóst að hann yrði mikil styrking fyrir það lið sem nær honum til sín.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.