
Það var ansi fámennt í stúkunni í Valsheimilinu á mánudaginn þegar Valur vann sögulegan 18 marka sigur á KA í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar en liðin mætast í öðrum leik liðanna á Akureyri annað kvöld klukkan 18:00. Rætt var um mætinguna á leikinn í boði Everdure Grill í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. ,,Það er sama umræða og á hverju einasta ári, sama og í hverri einustu umferð, sama og alltaf. Hvar í andskotanum eru Valsmenn? Það var vissulega verið að hnefa fótboltalið þeirra á sama tíma upp í Egilshöll," sagði Stymmi klippari þegar hann opnaði á umræðuna um mætinguna á leik Vals og KA á mánudaginn. ,,Sagði ég ekki í fyrra að það ætti að fara banna Val í úrslitakeppninni?" velti Arnar Daði Arnarsson fyrir sér. Bergur Elí Rúnarsson fyrrum leikmaður Vals var gestur í Handkastinu og sagði það þetta væri ekki hægt lengur. ,,Það virðist líka ekki skipta máli hvort liðið sé komið í úrslitaeinvígi, það er erfitt að ræsa Valarana.” Arnar Daði greip þó inní og benti á að það væri ekkert hægt að segja þetta lengur um Valsara því á sama tíma væri miklu betri mæting á heimaleiki Vals í körfubolta. ,,Þetta snýst ekkert um Val, það er allavegana betri mæting á körfuboltaleiki hjá Val heldur en handboltaleik. Það er svona rúmlega 10 ár síðan þá var djók innan Vals hvort það ætti ekki að fara senda körfuboltadeild Vals í íþróttahúsið við Kennaraháskólann og spila þar því það voru svo fáir sem mættu á körfuboltaleiki þá. Ég held að það fari að styttast í það að karfan fari að gera grín af handboltanum í Val og velti fyrir sér hvort handboltinn fari ekki að spila heimaleiki sína í íþróttahúsinu í Kennaraháskólanum eða í Hlíðaskóla.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.