Inga Maria Roysdóttir hefur framlengt samningi sínum við Stjörnuna og mun því leika áfram með liðinu á næstu leiktíð. Í tilkynningu frá Stjörnunni segir að Inga hafi staðið sig afar vel, sé frábær karakter og mikil stemnings manneskja og að mikil tilhlökkun sé í Garðabænum að sjá hana áfram í bláu treyjunni á næsta tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.