

Færeyska landsliðið er gott sem komið inná Evrópumótið eftir öflugan fimm marka sigri á Íslandi á heimavelli í kvöld. Íslenska landsliðið er hinsvegar með bakið upp við vegg og þarf að treysta á önnur úrslit í riðlinum til að eiga möguleika á sæti á Evrópumótinu sem fram fer síðar á árinu. Spilamennska íslenska liðsins var kraftmikil í upphafi leiks og leiddi íslenska liðið lengi vel í fyrri hálfleik og var meðal annars yfir 12-10 og 15-14 en færeyska liðið endaði seinni hálfleikinn betur og fór inn í hálfleikinn með tveggja marka forskot 18-16. Íslenska liðið náði sér aldrei á strik í þeim seinni og hvorki markvarsla, vörn en sóknarleikurinn var nægilega góður. Færeyjar hófu seinni hálfleikinn 6-3 og voru skyndilega komnar fimm mörkum yfir í stöðunni 24-19. Færeyjar náði mest átta marka forsystu í seinni hálfleik í stöðunni 32-24 og var það einungis formsatriði fyrir heimakonur að klára leikinn. Lokatölur 35-30 og annað tap Íslands gegn Færeyjum í undankeppni Evrópumótsins staðreynd. Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði Íslands með sjö mörk. Katrín Tinna Jensdóttir skoraði fimm mörk og Elín Rósa Magnúsdóttir og Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor. Elín Klara Þorkelsdóttir átti afleitan leit og skoraði ekki mark í leiknum úr þremur skottilraunum. Hafdís Renötudóttir varði átta skot í marki Íslands, 24% markvarsla og Sara Sif Helgadóttir var með tvö varin skot með 16% markvörslu. Íslenska landsliðið þarf nú að treysta á sigur Svartfjallalands gegn Portúgal sem fram fer á morgun og svo þarf liðið að vinna Portúgal í lokaleiknum sem fram fer á Ásvöllum á sunnudaginn. Línumaðurinn, Pernille Brandenborg var markahæst í liði Færeyja með tólf mörk úr tólf skotum. Jana Mittún skoraði sjö mörk. Natasja Hammer leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild kvenna kom inná, undir lok leiks og skoraði tvö mörk. Annika Friðheim Petersen fyrrum markvörður Hauka varði 10 skot í marki Færeyja og var með 35% markvörslu og Rakul Wardum varði tvö skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.