Línumaðurinn, Bjarta Johansen leikur sinn síðasta landsleik á ferlinum á heimavelli í kvöld þegar Færeyjar tekur á móti Íslandi í næst síðustu umferð undankeppni Evrópumótsins. Síðasti leikurinn verður síðan á sunnudaginn þegar Færeyjar heimsækja Svartfjallaland. „Ég reyni að hugsa ekki of mikið um að þetta verði minn hinsti dans á heimavelli, við Tjarnir, heldur frekar um að ná eins góðum úrslitum og mögulegt er, svo Færeyjar komist aftur á stórmót," þetta sagði reynslumikli línumaður færeyska landsliðsins Bjarta Johansen við Portal.fo. Bjarta á að baki 55 landsleiki fyrir færeyska landsliðið, sú næst leikjahæsta frá upphafi. Bjarta Osberg Johansen staðfesti við færeyska miðla í haust að hún myndi hætta í landsliðinu þegar þessi undankeppni væri lokið. Bjarta sem er 32 ára gömul og leikur með Kyndil í Færeyjum viðurkennir að þetta verði skrýtin tilfinning og sennilega tilfinningaþrungið. Hins vegar er Bjarta Johansen einbeitt að því að Færeyjar nái nægilega góðum úrslitum gegn Íslandi í kvöld til að tryggja sér sæti á EM. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:00 og verður sýndur í beinni á RÚV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.