Dregið var í riðla fyrir Opna Evrópumótið sem fram fer í Gautaborg í sumar en dregið var í Vín í gær. Alls taka 20 þjóðir þátt í mótinu en leikið en um er að ræða kvennalandslið skipuð 16 ára og yngri. Efstu tvær þjóðir mótsins vinna sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í sama aldursflokki sem fram fer síðar á árinu en um er að ræða í fyrsta skipti sem IHF heldur HM fyrir þennan aldursflokk. Mótið fer fram í Gautaborg í Svíþjóð dagana 29. júní – 3. júlí 2026 og er hluti af hinu árlega handboltamóti Partille Cup. Liðunum 20 var skipt í fjóra riðla með fimm liðum í hverjum riðli. Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í 8-liða úrslit. Ísland sem var í þriðja styrkleikaflokki dróst í riðli með Ungverjalandi, Króatíu, Tékklandi og Litháen. Riðill A: Ungverjaland, Króatía, Tékkland, Ísland, Litháen
Riðill B: Spánn, Holland, Serbía, Færeyjar, Georgía
Riðill C: Frakkland, Svíþjóð, Rúmenía, Slóvakía, Finnland
Riðill D: Þýskaland, Sviss, Noregur, Portúgal, Tyrkland

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.