Markmiðið er að kveðja Val með Íslandsmeistaratitli
Baldur Þorgilsson

Lilja Ágústsdóttir, vinstri hornamaður Vals í Olís-deild kvenna, hefur skrifað undir samning við þýska úrvalsdeildarliðið Zwickau. Hún gengur í raðir liðsins í sumar eftir að tímabilinu með Val lýkur.

Aðspurð hvort fleiri lið hafi sýnt henni áhuga segir Lilja að nokkur félög hafi haft samband. „Það var meðal annars eitt lið í Svíþjóð sem kom til greina, en þegar þetta tækifæri hjá Zwickau kom upp varð ég mjög spennt. Mér leist strax afar vel á það sem félagið hefur upp á að bjóða," sagði Lilja sem segir að þýska félagið hafi fyrst haft samband við sig í janúar.

Viðræðurnar við þýska félagið gengu vel að hennar sögn. „Ég átti tvo fjarfundi með þeim og var strax mjög hrifin af því sem þeir höfðu fram að færa. Umgjörðin er mjög flott og deildin spennandi. Ég heyrði líka í Díönu Dögg og hún mælti mjög vel með bæði félaginu og þjálfaranum," sagði Lilja en Díana Dögg Magnúsdóttir lék á sínum tíma með félaginu áður en hún gekk í raðir Blomberg-Lippe.

Lilja segist búast við að fá gott hlutverk hjá liðinu, þó að það ráðist að lokum af hennar eigin frammistöðu. „Miðað við það sem þjálfarinn hefur sagt geri ég ráð fyrir að fá gott hlutverk, en á endanum snýst þetta um hvernig maður stendur sig á æfingum og í leikjum.“

Hún segir þýsku deildina vera sterka og spennandi. „Ég veit að deildin er mjög sterk og það er mikil stemning og áhugi á leikjunum, sem gerir þetta enn meira spennandi. Liðið er í neðri hlutanum eins og er, en það er verið að styrkja það fyrir næsta tímabil og markmiðið er að fara ofar í töflunni.“

Lilja segist afar spennt fyrir því að takast á við nýtt ævintýri erlendis. „Ég hef alltaf haft áhuga á að fara út og einbeita mér alfarið að handboltanum. Ég er mjög spennt fyrir þessu og vona að þetta gangi vel.“

Undanfarnir mánuðir hafa þó ekki verið áfallalausir, þar sem meiðsli hafa sett strik í reikninginn. „Ég er að koma vel til baka eftir hnémeiðsli og líður vel. Ég er farin að komast í betra spilform og hlakka til framhaldsins, bæði hér heima og svo að fara út í sumar. Markmiðið er að kveðja Val með Íslandsmeistaratitli í vor.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top