
Tveir leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í dag. Janus Daði Smárason og félagar í Pick Szeged mættu Kielce og HBC Nantes fengu GOG í heimsókn. Kielce - Pick Szeged 32-32 (17-19) HBC Nantes - GOG 40-28 (21-12)
Janus Daði Smárason og félagar í Pick Szeged komust áfram í 8-liða úrslitin með jafnteflinu í kvöld eftir að hafa unnið fyrri leikinn. Janus skoraði 4 mörk í dag. Fyrrum félagar Janusar í Magdeburg bíða svo í 8-liða úrslitunum.
Nantes tryggðu farseðil sinn í 8-liða úrslitin með stæl þegar þeir kjöldrógu GOG. Valero Rivera Folch var markahæstur hjá Nantes með 9 mörk og Lasse Sunesen Vilhelmsen var markahæstur hjá GOG með 6 mörk. Barca bíða svo Nantes í 8-liða úrslitunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.