Þjálfarabreytingar í Mosó – Stefáni sagt upp
Egill Bjarni Friðjónsson

Stefáni Árnasyni hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara Aftureldingar eftir eins árs starf sem aðalþjálfari liðsins. Þetta herma áreiðanlegar heimildir Handkastsins en leikmönnum Aftureldingar voru tilkynnt tíðindin í kvöld.

Stefán hafði áður verið aðstoðarþjálfari Gunnars Magnússonar hjá Aftureldingu í þrjú ár og stýrt yngri flokkum hjá félaginu. Stefán var yfirþjálfari Aftureldingar á þessu tímabili samhliða því að stýra meistaraflokki félagsins.

Afturelding féll úr leik í úrslitakeppni Íslandsmótsins í síðustu viku eftir tap gegn Haukum í 8-liða úrslitum í oddaleik á Ásvöllum. Liðið endaði í 6.sæti Olís-deildarinnar í vetur eftir frábæra byrjun á tímabilinu þar sem Afturelding vann fimm fyrstu leiki sína á tímabilinu.

Gengi liðsins eftir áramót var hinsvegar brösugt þar sem liðið vann einungis einn leik í Olís-deildinni af þeim sjö leikjum sem liðið spilaði og þá tapaði liðið í 8-liða úrslitum gegn Haukum 2-1 eins og fyrr segir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top