Austurríska félagið, Alpla Hard hefur staðfest að leiðir félagsins og Tuma Steins Rúnarssonar skilja í sumar en Tumi Steinn hefur leikið með liðinu undanfarin tvö tímabil. Áður lék Tumi Steinn með Coburg í þýsku B-deildinni. Handkastið hafði áður greint frá því að Tumi Steinn myndi yfirgefa félagið í sumar og nú hefur það verið staðfest. ,,Eftir tvö ár hjá Alpla HC Hard rennur samningur Tuma Rúnarssonar út eins og áætlað var í lok tímabilsins 2025/26 og verður ekki framlengdur. Ákvörðunin var ekki auðveld fyrir þá sem að henni komu og var tekin sem hluti af stefnumótun leikmannahópsins eftir vandlega íhugun," segir í tilkynningunni frá félaginu. Tumi Steinn sem er 26 ára hefur stýrt sóknarleik Alpla Hard undanfarin tvö tímabil en þjálfari liðsins er Hannes Jón Jónsson sem lætur af störfum í sumar. Þá leikur Tryggvi Garðar Jónsson einnig hjá félaginu en hann gerði eins árs samning við félagið og óvíst er hvað tekur við hjá honum eftir tímabilið. Hefur Tumi Steinn verið orðaður við heimkomu og hafa félög á borð við KA og Val verið orðuð við leikmanninn. Tumi Steinn vildi ekkert tjá sig á dögunum þegar Handkastið hafði samband við hann.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.