Tveir leikmenn Hauka meiddust í Hafnarfjarðarslagnum
J.L.Long

Haukar þurftu að sætta sig við sex marka tap gegn FH 27-21 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn sem fram fór í Kaplakrika í gærkvöldi.

Haukar voru einu marki yfir í hálfleik og leiddu í 45 mínútur en í stöðunni 16-16 sneri FH-ingar taflinu sér í vil og komust yfir í fyrsta skipti í langan tíma og þá var ekki aftur snúið. Sex marka sigur FH gefur kannski ekki rétt mynd á þróun leiksins en FH-ingar voru ekki nema tveimur mörkum yfir þegar örfáar mínútur voru eftir af leiknum.

Um miðbik seinni hálfleiks urðu Haukar fyrir áfalli þegar bæði Grétar Ari Guðjónsson og Darri Aronsson meiddust. Darri kom ekkert meira við sögu en Grétar kom örlítið við sögu aftur en fór snemma aftur útaf vegna verkja.

,,Við missum bæði Grétar og Darra á ögurstundu og við tökum stöðuna á Darra á morgun (í dag). Vonandi er þetta ekki eitthvað alvarlegt," sagði Gunnar Magnússon í viðtali við Handkastið eftir leik.

,,Grétar var búinn að vera sjóðandi heitur en misstígur sig og markvarslan dettur niður í seinni hálfleik. Hann reyndi að koma aftur inn en gat það því miður ekki og á sama tíma fær Aron á sig dauðafæri og kemst ekki inn í leikinn."

Haukar og FH mætast í leik tvö á Ásvöllum á föstudagskvöldið klukkan 19:00 en KA tekur á móti Val á fimmtudagskvöldið í hinum undanúrslitaeinvíginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top