Úrslitin í umspilinu að hefjast en deildarkeppninni ekki enn lokið
Eyjólfur Garðarsson)

Úrslitaeinvígið um laust sæti í Olís-deild karla hefst í kvöld í Garðabænum þegar Stjarnan tekur á móti Herði í fyrsta leik einvígisins.

Stjarnan hafði betur gegn Fjölni í undanúrslitaeinvíginu 2-1 eftir að hafa tapað fyrsta leiknum en Hörður vann Gróttu 2-0 í hinu einvíginu. Hefst leikur Stjörnunnar og Harðar klukkan 18:30 í kvöld.

Athygli vekur að þrátt fyrir að umspilið sé í fullum gangi og hófst 27. mars er deildarkeppninni í Grill66-deildinni ekki enn lokið því enn á eftir að spila einn leik í deildinni. Leikur HBH, venslaliðs ÍBV og ÍH, venslaliðs FH hefur ekki enn farið fram og engin dagsetning er skráð fyrir þann leik á heimasíðu HSÍ.

Það verður að teljast ansi athyglisvert að sá leikur skuli ekki enn vera búinn að spilast en leiknum var frestað á sínum tíma vegna óveðurs.

Um er að ræða tvö neðstu liðin í Grill66-deildinni en ÍH er í 11.sætinu með 8 stig og HBH í 12.sætinu með fjögur stig. Bæði lið eru því fallin úr Grill66-deildinni.

Víkingur 2 hefur tryggt sér sigur í 2.deild karla þegar liðið á enn tvo leiki eftir í deildinni en Víðir og Hvíti riddarinn 2 eru í harðri baráttu um 2.sætið en liðin eru jöfn að stigum en Víðir á tvo leiki eftir á meðan Hvíti riddarinn 2 á einn leik eftir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top