Við trúum á það sem við höfum byggt upp á þessu tímabili
Hörður)

Úrslitaeinvígið í umspilinu um laust sæti í Olís deildinni á næstu leiktíð hefst í kvöld. Fyrsti leikur fer fram í kvöld í Heklu höllinni í Garðabæ kl. 18:30.

Stjarnan og Hörður mætast og þarf þrjá sigra til að tryggja Olís deildar sætið.

Pedro Nunes þjálfari Harðar hefur eftirfarandi að segja um einvígið.

"Við vitum að við erum að mæta mjög sterku liði sem er deild ofar en við. Lið með gæði og mikla reynslu. En við trúum á það sem við höfum byggt upp á þessu tímabili og þá vinnu sem við höfum lagt í það. Að komast í úrslitaeinvígið er ekki tilviljun, það segir margt um þennan hóp. Við ætlum að spila eins og við viljum og vera trúir því sem við erum. Það er mikilvægt fyrir okkur að byrja vel, jafnvel á útivelli, og vera klárir í slaginn frá fyrstu mínútu."

Hörður sló út Gróttu 2-0 í undanúrslitum á meðan Olís-deildarlið Stjörnunnar vann Fjölni 2-1 eftir að hafa lent 0-1 undir í einvíginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top