
Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn fóru af stað í vikunni og segja mætti að yngsta kynslóðin hafi stolið senunni í fyrstu umferðinni. Markahæstu leikmenn þriggja af þeim fjórum liðum sem leika í undanúrslitunum eru allir fæddir árið 2008 og eru því á sínu 18. aldursári. Í leik Vals og KA sem Valur vann með átján mörkum, 39-21 var Gunnar Róbertsson leikmaður Vals markahæstur með átta mörk en hann verður 18 ára síðar á árinu. Í Hafnarfjarðarslag FH og Hauka voru markahæstu leikmenn beggja liða einnig fæddir árið 2008. Ómar Darri Sigurgeirsson sem varð 18 ára í janúar var markahæstur í liði FH með átta mörk og hjá Haukum var Freyr Aronsson markahæstur með sjö mörk. Allir eru þeir eru orðnir máttarstólpar í bestu liðum Íslands þrátt fyrir ungan aldur. ,,Þetta eru frábærir leikmenn og það er hægt að telja fleiri til á þessum aldri í deildinni. Þetta er það sem gerir deildina sérstaka. Við erum að leyfa mönnum að koma snemma inn á sviðið og fá að prufa aðstæður sem þessar og það er líka ástæðan fyrir því að menn stækka. Þessir leikmenn njóta góðs af því að hafa fengið stór hlutverk og hafa svo sannarlega staðið fyrir sínu," sagði Sigursteinn Arndal þjálfari FH í viðtali við Handkastið spurður út í Ómar Darra og Frey Aronsson sem voru aðalmennirnir í sóknarleik FH og Hauka í Kaplakrika á þriðjudagskvöldið. Gunnar Róbertsson verður í eldlínunni með Val í öðrum leik liðsins gegn KA á Akureyri í kvöld klukkan 18:00 og Haukar og FH mætast síðan annað kvöld klukkan 19:00 á Ásvöllum.


Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.