
Afturelding hefur staðfest þær fréttir sem Handkastið birti í gærkvöldi að Stefáni Árnasyni þjálfara karlaliðs félagsins hafi verið sagt upp störfum í gær. ÞJÁLFARABREYTINGAR Í MOSÓ - STEFÁNI SAGT UPP Handkastið greindi frá því í morgun að Hrannar Guðmundsson fyrrum þjálfari Stjörnunnar væri talinn líklegastur til að taka við liði Aftureldingar. TEKUR HRANNAR VIÐ AFTURELDINGU? Tilkynning Aftureldingar í heild sinni: Stjórn handknattleiksdeildar hefur ákveðið að gera breytingar á þjálfarastöðu meistaraflokks karla og hefur Stefán Árnason látið af störfum. Stefán hefur starfað hjá félaginu í fjögur ár, þar af þrjú ár sem aðstoðarþjálfari og eitt ár sem aðalþjálfari meistaraflokks karla og yfirþjálfari yngri flokka. Á þeim tíma hefur hann lagt afar mikið af mörkum til félagsins, ekki síst í öflugu uppbyggingarstarfi yngri flokka. Á tíma Stefáns hjá Aftureldingu hefur félagið náð góðum árangri í yngri flokkum og meistaraflokki. Meistaraflokkur karla varð bikarmeistari árið 2023, spilaði til undanúrslita á Íslandsmótinu 2023 og 2025 og fór alla leið í úrslitaeinvígið árið 2024. Þriðji flokkur karla varð Íslandsmeistari árið 2023 og hefur verið í fremstu röð um árabil. Þá hefur Stefán unnið mikið og gott starf í þróun yngri leikmanna þar sem margir uppaldir leikmenn hafa stigið sín fyrstu skref með meistaraflokki og gert sig gildandi í Olísdeildinni, auk þess sem fjöldi uppaldra leikmanna hafa skapað sér sess í yngri landsliðum Íslands. Afturelding þakkar Stefáni kærlega fyrir hans framlag til klúbbsins, fyrir fagmennsku og gott samstarf á liðnum árum og óskar félagið honum velfarnaðar í framtíðinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.