

Síðustu tveir leikirnir í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar fara fram í kvöld þegar Wisla Plock fær Sporting í heimsókn og Veszprém fer til Parísar og mætir PSG. Sporting og Veszprém standa betur að vígi fyrir leikina í dag en Sporting van fyrri leikinn á heimavelli 33-29 á meðan Veszprém vann átta marka sigur gegn PSG í Ungverjalandi 32-24. Athygli vekur að Bjarki Már Elísson er ekki í leikmannahópi Veszprém í leiknum í kvöld en Handkastið greindi frá því í morgun að hann hafi snúið til baka eftir langvarandi meiðsli í síðasta deildarleik Veszprém um síðustu helgi. Orri Freyr Þorkelsson er að vanda í leikmannahópi Sporting fyrir leikinn í dag í Póllandi. Komist Veszprém áfram mæta þeir Fuchse Berlín í 8-liða úrslitunum en sigurvegarnir úr einvígi Wisla Plock og Sporting mæta Álaborg í 8-liða úrslitunum. Leikur Wisla Plock og Sporting hefst klukkan 16:45 en leikur PSG og Veszprém hefst klukkan 18:45.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.