
Pick Szeged og Nantes tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir leiki gærkvöldsins en Pick Szeged gerði jafntefli gegn Kielce en vann fyrri leikinn. Töluvert minni spenna var í Frakklandi þar sem Nantes vann GOG með tólf mörkum á heimavelli. Janus skoraði fjögur mörk fyrir Pick Szeged en fyrrum félagar Janusar í Magdeburg bíða þeirra í 8-liða úrslitunum. Nantes mætir hinsvegar Barcelona en Nantes vann Barcelona í leik um 3.sætið á Final 4 á síðustu leiktíð. Tveir leikir fara fram í dag þar sem Wisla Plock fær Sporting í heimsókn og PSG fær Veszprém í heimsókn. Hér að neðan er hægt að sjá hápunktana úr leikjum gærkvöldsins. Kielce - Pick Szeged 32-32 (17-19) HBC Nantes - GOG 40-28 (21-12)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.