Tveir leikir fóru fram í Meistardeild Evrópu í kvöld. Sporting og Veszprém tryggðu síðustu tvö sætin í 8-liða úrslitin. Wisla Plock - Sporting 28-27 (13-11) Sporting mæta liði Álaborgar í 8-liða úrslitunum. PSG - Veszprém 35-35 (20-18) Veszprém mæta Fuchse Berlin í 8-liða úrslitunum.
Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting komust áfram í 8-liða úrslitin þrátt fyrir tap í Póllandi eftir að hafa unnið fyrri leikinn í Portúgal 33-29. Orri skoraði eitt mark í kvöld, Fransisco Costa var markahæstur í liði Sporting með 8 mörk og Sergei Mark Kosorotov var markahæstur hjá Wisla Plock með 7 mörk.
Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í Veszprém komust einnig áfram í 8-liða úrslitin eftir að hafa unnið einvígið við PSG samanlagt 67-59. Bjarki var hinsvegar ekki með Veszprém í kvöld. Nedim Remili og Ahmed Hesham Elsayed Moham voru markahæstir fyrir Veszprém með 6 mörk hvor og Kamil Syprzak var markahæstur fyrir PSG með 10 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.