

Þrátt fyrir slæmt tap í Færeyjum í gærkvöldi hjá íslenska kvennalandsliðinu er ljóst að liðið á enn möguleika á sæti á Evrópumótinu sem fram fer síðar á árinu en Ísland er einungis með tvö stig eftir fimm umferðir en lokaumferðin fer fram um helgina. Það er því ljóst að íslenska landsliðið mætir Portúgal í úrslitaleik á sunnudaginn þar sem sæti í lokakeppni Evrópumótsins er í húfi. Leikurinn fer fram á Ásvöllum og hefst klukkan 16:00 en uppselt er á leikinn en Besti Bitinn bauð frítt á leikinn. Þetta varð ljóst eftir sigur Svartfjallalands á Portúgala 34-26 sem fram fór í kvöld. Íslenska liðið þurfti að treysta á sigur Svartfjallalands í leiknum til að eiga enn möguleika á farmiða á EM. Til að tryggja sér sæti á Evrópumótinu þarf íslenska liðið að vinna Portúgal á Ásvöllum með að minnsta kosti tveggja marka mun. Þá myndi Ísland jafna Portúgal að stigum en Ísland myndi þá fara upp fyrir Portúgal á betri innbyrðis viðureignum. Portúgal hafði betur gegn Íslandi með eins marks sigri í Matosinhos í október.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.