
Arnór Snær Óskarsson var markahæstur allra í þriggja marka sigri Vals gegn KA í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins sem fram fór í KA-heimilinu í kvöld. Valur vann leikinn að lokum með þremur mörkum 33-30 eftir mikla spennu síðasta korterið í leiknum. Arnór Snær skoraði tíu mörk í leiknum og hann var að vonum ánægður með sigurinn en Valur er nú komið í 2-0 í einvíginu gegn KA. ,,Þetta var geggjaður leikur. Við vorum fannst mér með þetta í fyrri hálfleik en síðan eru þeir geggjaðir í seinni hálfleik og þá kemur stemningin. Það er sturlað að spila hérna og svakaleg stemning. Við koðnum aðeins en síðan fannst mér við vera stórir og klárum þetta. Bjöggi varði nokkra mikilvæga bolta og þetta var bara geggjað." ,,Ég geri ráð fyrir hörkuleik eins og þessi var og vonandi dettur þetta okkar megin," sagði Arnór Snær að lokum aðspurður út í þriðja leik liðanna sem fram fer á Hlíðarenda á mánudagskvöldið klukkan 19:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.