Íslenska kvennalandsliðið tapaði illa gegn Færeyjum í Þórshöfn í gærkvöldi í næst síðustu umferð undankeppni Evrópumótsins. Færeyjar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik eftir góða byrjun íslenska liðsins. Eftir góða byrjun Færeyja í seinni hálfleik var liðið skyndilega komið fimm mörkum yfir og komst mest átta mörkum yfir í leiknum. Lokatölur urðu 35-30 Færeyjum í vil sem eru gott sem komnar áfram á Evrópumótið en Ísland er með bakið upp við vegg fyrir lokaumferðina. „Ég er ótrúlega svekkt. Við vorum búnar að skipuleggja okkur vel og undirbúa okkur vel en eiginlega frá fyrstu mínútu vorum við að gera allt of mikið af feilum og feilum sem við vorum búnar að tala um að við þyrftum að koma í vegfyrir,” sagði fyrirliði íslenska landsliðsins sem var jafnframt markahæst, Sandra Erlingsdóttir í viðtali við Finn Hansson sem tók viðtalið fyrir RÚV eftir tap Íslands gegn Færeyjum í undankeppni Evrópumótsins í gærkvöldi. Sandra var næst spurð út í lokaleik Íslands sem fram fer á sunnudaginn gegn Portúgal ,,Vá, ég er ekki komin svona langt. Það var 100% fókus á þessum leik. Við höfðum allar mikla trú það kemur í ljós á eftir.” Að lokum var hún spurð að því hvort eitthvað í leik Færeyja hafi komið henni á óvart í leiknum. ,,Neinei ég myndi ekki segja það. Það hafa komið leikir þar sem við erum að vinna þessa bardaga einn á einn en síðan í dag erum við að tapa þessum bardögum. Við vildum þétta þetta inn á miðju og fá hornamennina í gegn, en síðan fóru hornamennirnir að skora líka. Það gekk svona eiginlega allt upp hjá þeim." Svartfjallaland og Portúgal mætast í sama riðli í kvöld og þarf íslenska liðið að treysta á sigur Svartfjallalands í þeim leik til að eiga tölfræðilegan möguleika á að komast á Evrópumótið. Þá þarf íslenska liðið að vinna það portúgalska á Ásvöllum á sunnudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.