Þurfum við ekki að kalla eftir meiri standard frá nýjum framkvæmdastjóra HSÍ?
Baldur Þorgilsson

Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn hófust í vikunni þegar Valur tók á móti KA og fór illa með norðanmenn og vann sögulegan 18 marka sigur, 39-21.

Rætt var um leikinn í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins en þar var einnig rætt þá ákvörðun HSÍ að sýna leikinn í gegnum Spiideo myndavél.

,,Ég hitti Svavar í Fitness Sport í morgun og hann var vankaður og skyldi ekki hvað hafi átt sér stað í Valsheimilinu en fyrsta umræðuefnið okkar var útsendingin frá leiknum og hann spurði mig einfaldlega: Hvaða útsendingu var ég að horfa á?” opnaði Arnar Daði Arnarsson umræðuna og hélt áfram:

,,Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri HSÍ er greinilega farin að taka til á skrifstofu HSÍ. Ég ætla viðurkenna það að þetta var það seinasta sem ég bjóst við þegar ég vaknaði um morguninn, að ég og mín fjölskylda værum að fara horfa á fyrsta leik Vals og KA í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í Spiideo útsendingu.”

,,Þurfum við ekki að kalla eftir meiri standard en þetta frá nýjum framkvæmdastjóra HSÍ heldur en þetta?” spurði Arnar Daði síðan gest þáttarins, Berg Elí Rúnarsson.

,,Við verðum að gera það, miðað við það að við erum komin í undanúrslit þá er maður að búast við því að það sé meira lagt í þetta heldur en Spiideo útsendingar. Eins finnst mér lágmark að það séu tveir að lýsa og það þýðir ekkert að vera með Spiideo myndavél í undanúrslitum, það er fyrir neðan allar hellur. En auðvitað var ég sjálfur bara mættur á völlinn og gat því ekki tekið eftir því hvernig útsendingin var.”

Stymmi klippari stóð í vörn fyrir HSÍ að einhverju leiti í þessari umræðu og talaði eins og hann hafi verið viðbúinn fyrir því að þetta gæti orðið veruleikinn. Hann fór þó allur að mýkjast þegar leið á umræðuna.

,,Skítt með tvo lýsendur, ég væri til í að fá 2-3 sjónarhorn og mannaðar myndavélar svo við séum ekki að missa af einhverjum atvikum. Það kostar vissulega að framleiða þessar útsendingar og við vorum að velta því fyrir okkur að þetta er þriðja árið sem við erum með Spiideo. Ef þetta kostar sambandið það mikið að það sé erfitt að standa í þessu þegar við erum komin í undanúrslit þá sting ég upp á því að við munum sleppa að sýna leiki í opinni dagskrá í 3.,4. 5. og 6.umferð og spörum þá einhvern pening. Fyrir mér er það algjört must að varan sem við erum að reyna selja og koma á framfæri heim til fólks inn í stofu sé vel unnin og pródúseruð.”

Valur og KA mætast í öðrum leik liðanna fyrir norðan í kvöld klukkan 18:00.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top