


KA tóku á móti Val í öðrum leik liðanna í undanúrslita einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta á Akureyri í dag. Valur vann fyrri leik liðanna vægast sagt örugglega og leiddi einvígið því 1-0. Valur byrjaði leikinn töluvert betur í kvöld og voru komnir 6 mörkum yfir eftir um 15 mínútna leik og voru eflaust margir stuðningsmenn KA farnir að hugsa til fyrsta leik liðanna í einvíginu. KA náðu þó örlítið að laga stöðuna fyrir hálfleik og var staðan 14-19 þegar flautað var til hálfleiks. Atvik fyrri hálfleiksins gerðist rétt fyrir lok fyrri hálfleiks þegar Þorgils Jón Svölu Baldursson og Arnór Ísak Haddsson fengu báðir að líta rautt spjald fyrir stimpingar á gólfinu og horfðu því á restina af leiknum úr stúkunni. KA komu mjög grimmir til leiks í síðari hálfleik með Ágúst Elí Björgvinsson í miklum ham í markinu og náðu þeir hægt og rólega að minnka forskot Valsmanna. Á 45.mínútu leiksins voru KA búnir að jafna leikinn í 22-22 og rosalegar lokamínútur framundan. Valsmenn höfðu alltaf frumkvæðið á því að skora en KA svaraði alltaf um hæl. Staðan var 30-30 þegar 3 mínútur voru eftir og allt stefndi í framlengingu fyrir norðan. Valsmenn voru hins vegar sterkari á lokakaflanum og unnu að lokum þriggja marka sigur, 30-33. Það vantaði ögn meiri klókindi í lið KA manna til að klára þennan leik og munaði einnig mikið um að þeir töpuðu 14 boltanum á móti 5 töpuðum hjá Valsmönnum. Einar Rafn Eiðsson var markahæstur hjá KA með 8 mörk en hjá Val var Arnór Snær Óskarsson markahæstur með 10 mörk. Staðan er því orðin 2-0 fyrir Val í einvíginu og dugar þeim sigur í næsta leik til að tryggja sig í úrslitaeinvígið. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.