
Tveir leikir fóru fram í Meistardeild Evrópu í gærkvöldi. Íslendingaliðin, Sporting og Veszprém tryggðu sér síðustu tvö sætin í 8-liða úrslitum keppninnar. Veszprém gerði jafntefli gegn PSG í París, 35-35 eftir að hafa unnið átta marka sigur í fyrri leik liðanna á heimavelli. Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting töpuðu með einu marki gegn Wisla Plock í Póllandi 28-27 en það dugði liðinu þó til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar annað árið í röð. Þar með er ljóst að fimm Íslendingalið taka þátt í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en Sporting mætir Álaborg og Veszprém mætir Füchse Berlin í 8-liða úrslitunum. Hér að neðan má sjá hápunktana úr leikjum gærkvöldsins. PSG - Veszprém 35-35 (20-18) Wisla Plock - Sporting 28-27 (13-11)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.