Samkvæmt heimildum Handkastsins er Íslendingurinn, Igor Kopyshynskyi ekki lengur á samningi hjá Aftureldingu eftir að samningi hans við félagið hafi verið sagt upp daginn fyrir oddaleik Aftureldingar gegn Haukum í síðustu viku. Haukar unnu leikinn 32-24 þar sem Igor skoraði aðeins eitt mark úr einni skottilraun. Sá leikur fór fram 2.apríl og er möguleiki á því að bæði Afturelding og Igor hafi verið með klásúlu í samningnum um að hægt væri að segja upp samningnum fyrir þann tíma. Igor framlengdi samningi sínum við Aftureldingu fyrir tímabilið og gerði tveggja ára samning við félagið. Igor gekk í raðir Aftureldingar frá Haukum árið 2022 og var því að klára sitt fjórða tímabil í Mosfellsbænum. ,,Það gleður okkur í handknattleiksdeild Aftureldingar að segja frá því að Igor Kopyshynskyi hefur ákveðið að framlengja samninginn sinn við félagið til ársins 2027. Igor kom til félagsins frá Haukum árið 2022 og hefur síðan þá verið einn allra besti hornamaður deildarinnar og varð m.a valinn bestur í bikarúrslitaleiknum þegar félagið vann árið 2023," var skrifað í færslu Aftureldingar þegar Igor framlengdi við félagið síðasta sumar. Í fyrradag var tilkynnt að Stefáni Árnasyni þjálfara liðsins hafi verið sagt upp störfum. Um er að ræða afar athyglisverð ákvörðun stjórnar Aftureldingar þar sem Igor var næst markahæsti leikmaður Aftureldingar á tímabilinu með 118 mörk með 71% skotnýtingu. Haukur Guðmundsson annar hornamaður Aftureldingar skoraði níu mörk á tímabilinu með 52% skotnýtingu í vetur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.