Sjöunda tap Blæs og félaga í röð
Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP

Einn leikur fór fram í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þar sem Blær Hinriksson og liðsfélagar hans í Leipzig töpuðu sjöunda leik sínum í röð. Leipzig fékk Ými Örn Gíslason og félaga í Göppingen í heimsókn og töpuðu með fimm mörkum 29-34.

Göppingen leiddi með tveimur mörkum í hálfleik 18-16 en Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað hjá Göppingen sem eru áfram í 9.sæti deildarinnar með 26 stig eftir sigurinn.

Leipzig situr á botni deildarinnar þrátt fyrir það er staðan ekki vonlaus, því liðið er aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti þegar sex umferðir eru eftir af mótinu en hörð fallbarátta er á milli fjögurra neðstu liða deildarinnar.

Lið Leipzig, þar sem íslenski leikmaðurinn Blær spilar, heldur áfram að glíma við erfiðan kafla í þýsku deildinni.

Liðið hefur nú leikið sjö leiki í röð án sigurs og situr enn á botni deildarinnar. Þrátt fyrir það er staðan ekki vonlaus, því liðið er aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti þegar sex umferðir eru eftir af mótinu. 

Blær hefur verið einn af lykilmönnum liðsins á tímabilinu og er bæði næst markahæsti leikmaður þess og sá næst stoðsendingahæsti. Hann átti einnig ágætan leik að þessu sinni, skoraði þrjú mörk, gaf tvær stoðsendingar og stal boltanum einu sinni. 

Þrátt fyrir framlag hans dugði það skammt, en leikurinn einkenndist af frammistöðu Marcel Schiller sem fór á kostum og skoraði 16 mörk fyrir Göppingen. Staðan er því áfram erfið hjá Leipzig, sem þarf nauðsynlega að snúa genginu við á lokaspretti tímabilsins ef liðið ætlar að halda sæti sínu í efstu deild.

Blær hefur verið einn af lykilmönnum liðsins á tímabilinu og er bæði næst markahæsti leikmaður þess og sá næst stoðsendingahæsti. Hann átti einnig ágætan leik að þessu sinni, skoraði þrjú mörk, gaf tvær stoðsendingar.

Þrátt fyrir framlag hans dugði það skammt, en leikurinn einkenndist af frammistöðu Marcel Schiller sem fór á kostum og skoraði 16 mörk fyrir Göppingen.

Staðan er því áfram erfið hjá Leipzig, sem þarf nauðsynlega að snúa genginu við á lokaspretti tímabilsins ef liðið ætlar að halda sæti sínu í efstu deild.

Dean Bombac og Lukas Binder voru markahæstir hjá Leipzig með sex mörk hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top