
Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Haukar - FH (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: Haukar Fyrsti leikur þessara liða í einvíginu var frábær skemmtun sem var jöfn allt fram á 56.mínútu þar sem FH sigu fram úr og unnu eftir frábæra innkomu hjá Jóni Þórarni í markinu. Bæði lið munu koma dýrvitlaus til leiks á morgun og Haukar munu selja sig dýrt til þess að verja heimavöllinn sinn. Ég held að Gunni Magg sé búinn að laga það sem vantaði uppá í fyrsta leik liðanna og Haukar vinni leikinn á morgun með 2 mörkum eftir algjöran naglbít. Þetta einvígi verður að fara í oddaleik!

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.