
Sænski landsliðsmaðurinn, Jim Gottfridsson greindi frá því í kvöld að ungverska handknattleiksliðið Pick Szeged hafi rift þriggja ára samningi hans án fyrirvara. Í yfirlýsingu sinni segir hann ákvörðunina hafa komið sér algjörlega á óvart og að engar skýringar hafi fylgt. Handkastið greindi frá málinu fyrr í vikunni. Gottfridsson hyggst leita réttar síns gagnvart félaginu vegna málsins. Athygli vekur að þjálfari Pick Szeged, Michael Apelgren, er jafnframt landsliðsþjálfari sænska karlalandsliðsins þar sem Jim Gottfridsson leikur. Hann gekk til liðs við Pick Szeged á síðasta ári eftir að hafa undirritað þriggja ára samning og hafði gert ráð fyrir að ljúka ferlinum þar. „Mér er orðavant,“ segir hann meðal annars í tilkynningunni en hann hafði leikið í fleiri fleiri ár með Flensburg áður en hann gekk í raðir Pick Szeged. Fyrr í dag staðfesti Pick Szeged að samningi hans hefði verið sagt upp, í kjölfar óstaðfestra frétta undanfarna daga um að Svíinn væri fallinn í ónáð hjá félaginu. Landsliðsmaðurinn, Janus Daði Smárason leikur með Pick Szeged en gengur í raðir Barcelona í sumar. Pick Szeged komst á dögunum áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Hér að neðan má sjá yfirlýsingu sænska landsliðsinsmannsins sem hefur verið orðaður við endurkomu til Flensburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.