Guðjón Valur og félagar áfram á sigurbraut
Michael Hundt / AFP

Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach halda áfram frábæru gengi sínu í þýsku deildinni en þeir tóku á móti Wetzlar í kvöld. Þjálfari Wetzlar er Rúnar Sigtryggsson. Hann náði þó ekki að stríða landa sínum og unnu Gummersbach með öruggan átta marka sigur, 32-24.

Elliði Snær Viðarsson skoraði 3 mörk fyrir Gummersbach og Teitur Örn Einarsson eitt. Ludvik Hallback var markahæstur í liði heimamanna með 9 mörk en hjá Wetzlar skoraði Nafea Ahmed 5 mörk. Gummersbach sitja í 4.sæti deildarinnar eftir sigurinn en Wetzlar eru ennþá í næst neðsta sæti deildinnar, einu stigi frá öruggu sæti.

Í síðari leik dagsins tóku Haukar Þrastarson og félagar í Rhein Neckar Löwen á móti Flensburg. Leiknum lauk með þriggja marka sigri Flensburg, 33-36 eftir að staðan í hálfleik var 18-18. Jannik Kohlbacher var markahæstur í liði heimamanna með 9 mörk en hjá Flensburg var Lasse Möller markahæstur með 9 mörk einnig. Haukur Þrastarson skoraði 7 mörk í kvöld og gaf 10 stoðsendingar.

Flensburg eru áfram í 2.sæti eftir sigurinn en Rhein Neckar Löwen eru í 8.sæti.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top