Díana Dögg Magnúsdóttir leikmaður íslenska landsliðsins var að vonum ánægð með sætið á Evrópumótinu sem liðið tryggði sér í dag eftir átta marka sigur á Portúgal 32-24. ,,Tilfinningin er rosalega góð. Þetta var erfið byrjun en við vorum þolinmóðar og höfðum trú á verkefninu og létum þetta malla. Við komumst síðan hægt og bítandi framúr þeim," sagði Díana Dögg í viðtali við Handkastið eftir leikinn. ÍSLENSKA KVENNALANDSLIÐIÐ Á FJÓRÐA STÓRMÓTIÐ Í RÖÐ Byrjunin var erfið hjá íslenska liðinu sem lenti 1-5 undir í upphafi leiks og ekkert virtist ganga hjá liðinu hvorki varnarlega né sóknarlega. Hvernig var sú tilfinning? ,,Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá var hún alls ekki góð. En samt vorum við að fá ágætisfæri og vorum að búa til risa pláss sem við vorum ekki að nýta og þá vorum við að gera óþarfleg mistök og þá fengu þær ódýr hraðarupphlaupsmörk. Þegar við náðum að breyta því þá var þetta ekki eins mikil mótstaða eins og við vorum búnar að búa okkur undir." Díana segir að það hafi verið erfitt að kyngja tapinu gegn Færeyjum í vikunni. ,,Það voru auðvitað allir fúlir og svekktir en við þéttum okkur vel saman og vorum staðráðnar í því að gera þetta almennilega. Það var því mjög erfitt að byrja svona erfiðlega en síðan kom þetta.” Lengra viðtal við Díönu má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.