
Framarinn, Aníta Rut Eggertsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Fram um tvö ár. Þetta tilkynnti félagið í enn einni tilkynningu sinni á samfélagsmiðlum sínum en fjölmargir leikmenn bæði karla og kvennaliðs Fram hafa framlengt samninga sína síðustu daga. Aníta Rut sem er vinstri skytta hefur aðallega leikið með 3.flokki og Fram 2 í Grill66-deild kvenna í vetur en hefur þó verið í hóp í nokkrum leikjum með Fram í Olís-deildinni. Fram 2 endaði í neðsta sæti Grill66-deildarinnar í vetur en þar skoraði Aníta 29 mörk í 10 leikjum. ,,Aníta hefur sýnt mikla vinnusemi og vilja hjá okkur á æfingum og sóst eftir aukaæfingum sem er mjög ánægjulegt að fylgjast með. Við vonum svo sannarlega Aníta uppsker eins og hún sáir, við fylgjumst spennt með," segir í tilkynningunni frá Fram.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.