
Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvenna landsliðið hefur valið þá 16 leikmenn sem taka þátt í leik dagsins gegn Portúgal sem fram fer á Ásvöllum og hefst klukkan 16:00. Hópurinn er óbreyttur frá tapinu gegn Færeyjum á miðvikudaginn en um er að ræða úrslitaleik fyrir báðar þjóðir en sigurliðið tryggir sér sæti á Evrópumótið sem fram fer í lok árs. Ísland þarf þó tveggja marka sigur til að fara upp fyrir Portúgal. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV klukkan 16:00 en uppselt er á leikinn. Hópurinn er eftirfarandi: Markverðir Hafdís Renötudóttir, Valur (79/5) Sara Sif Helgadóttir, Haukar (24/0) Aðrir leikmenn Andrea Jacobsen, Blomberg-Lippe (69/117) Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (74/103) Elín Klara Þorkelsdóttir, Sävehof (36/138) Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (41/84) Elísa Elíasdóttir, Valur (32/31) Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram (5/5) Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (23/35) Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (36/40) Lovísa Thompson, Valur (40/74) Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (10/1) Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (17/8) Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (48/200) Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (6/12) Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (6/2)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.