Íslendingaslagur í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar
Hugo Segato / DPPI via AFP

Ísland átti tvö lið í Evrópudeildinni á þessu tímabili. Stjarnan féll úr leik í forkeppni Evrópudeildarinnar eftir tap gegn rúmenska liðinu Baia Mare í vítakastkeppni og þá lék Fram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en tapaði öllum leikjum sínum í keppninni.

Fyrsta umferð útsláttarkeppninnar fór fram í vikunni þar sem Melsungen, Nexe, Montpellier og Flensburg komust öll áfram.

Melsungen hafði betur gegn danska liðinu Fredericia, Nexe sló út Íslendingaliðið, Kristianstad. Tryggvi Þórisson og liðsfélagar hans í Elverum féllu úr leik gegn Montpellier og þá vann Flensburg danska liðið Skanderborg.

Átta liða úrslitin í Evrópudeildinni hefjast þriðjudaginn 28. apríl. Tvö Íslendingalið eru eftir í keppninni en þau mætast í átta liða úrslitunum þegar Melsungen og Porto mætast og því ljóst að einungis eitt Íslendingalið leikur í Final 4 helginni í Evrópudeildinni á þessu tímabili. Með Melsungen leika Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson og með Porto leikur Þorsteinn Leó Gunnarsson.

Hér má sjá viðureignirnar í átta liða úrslitunum.

Melsungen - Porto

Nexe - Kiel

Montpellier - Vardar

Flensburg - Hannover-Burgdorf

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top