Íslendingaslagur í Portúgal
ADA

Íslendingaliðin Porto og Benfica áttust við í Portúgölsku úrslitakeppninni í gær.

Bæði liðin eru að eltast við Sporting í baráttunni um meistaratitilinn en Porto tapaði gegn þeim um síðustu helgi í 1.umferð úrslitakeppninnar.

Benfica var engin fyrirstaða fyrir Porto í leik liðanna í gær og unnu öruggan tíu marka sigur, 42-32.

Þrátt fyrir 74 marka leik þá náðu Íslendingarnir, Þorsteinn Leó Gunnarsson og Stiven Tobar Valencia, ekki að skora neitt mark að þessu sinni en Þorsteini var vikið tvívegis af velli í leiknum.

Með sigrinum færðist Porto nær Sporting og eru nú tveim stigum á eftir þeim en Sporting á leik til góða í dag gegn Águas Santas.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top