Norðurlöndin: Íslendingarnir í Danmörku í góðum málum
ADA)

Þrír leikir fóru fram í Danmörku í dag, tveir í topp átta umspilinu og einn í fall umspilinu en þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni.

Við byrjum í fall umspilinu en þar unnu Ribe-Esbjerg flottan heimasigur á Sønderjyske, 36-35 þar sem eins og oft áður átti Elvar Ásgeirsson frábæran leik fyrir heimamenn en hann skoraði átta mörk úr tólf skotum og gaf sjö stoðsendingar fyrir liðið. Samkvæmt einkunnagjöf dönsku deildarinnar var hann besti maður vallarins.

Ribe-Esbjerg sitja eftir leikinn í öðru sæti umspilsins með fjögur stig eftir einn leik, en þeir tóku tvö stig með sér inn í umspilið. Neðsta liðið eftir umspilið er það eina sem fellur úr deildinni en þeir eru nú þegar komnir fjórum stigum á undan neðsta liðinu og því asni líklegt að þeir haldi sæti sínu.

Þá skiptum við yfir í topp átta umspilið en þar gerðu Skanderborg jafntefli á heimavelli gegn Mors-Thy í miklum markaleik, 36-36 en Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti flottan leik fyrir heimamenn og skoraði sjö mörk úr tíu skotum og gaf fjórar stoðsendingar fyrir liðið og var næstbesti leikmaður liðsins miðað við einkunnagjöfina.

Seinasti leikur dagsins lauk rétt í þessu en þá unnu TTH Holstebro mikilvægan sigur í einnig miklum markaleik, 37-34 gegn Bjerringbro-Silkeborg þar sem Jóhannes Berg Andrason klikkaði á eina skoti sínu í leiknum en Holstebro eru núna með þrjú stig, jafnmikið og Mors-Thy á meðan Skanderborg eru efstir með fimm stig og á botninum án stiga eru Bjerringbro-Silkeborg.

Úrslit dagsins:

Ribe-Esbjerg 36-35 Sønderjyske

Skanderborg 36-36 Mors-Thy

TTH Holstebro 37-34 Bjerringbro-Silkeborg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top