Ómar skoraði 14 mörk og Gidsel skoraði flautumark
Ronny Hartmann / AFP

Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Einar Þorsteinn Ólafsson og liðsfélagar hans í Hamburg þurftu að sætta sig við sjö marka tap gegn Kiel 27-34 á heimavelli þar sem Einar Þorsteinn var ekki meðal markaskorara.

Nicolaj Jørgensen var markahæstur í liði Hamburg með níu mörk í leiknum og Frederike Bo Andersen skoraði sjö. Hjá Kiel var Svíinn, Eric Johansson markahæstur með átta mörk og Domagoj Duvnjak var öflugur með sjö mörk og gaf tvær stoðsendingar.

Kiel er með 39 stig í 5.sæti deildarinnar eftir sigurinn en Hamburg er áfram í 11.sætinu með 23 stig.

Arnór Þór Gunnarsson og lærisveinar hans í Bergischer náðu í gott stig í fallbaráttunni þegar liðið tók á móti Stuttgart. Liðin gerðu jafntefli 25-25 eftir að Stuttgart hafi leitt í hálfleik 10-13. Stuttgart hófu seinni hálfleikinn af krafti og komust í 17-12.

Bergischer náðu hinsvegar að koma til baka og jöfnuðu metin tveimur mínútum fyrir leikslok og reyndist það vera síðasta mark leiksins. Kai Hafner var markahæstur í leiknum með átta mörk ásamt Noah Beyer vinstri hornamanni Bergischer. Svissneski landsliðsmaðurinn, Lenny Rubin skoraði sjö mörk fyrir Stuttgart.

Íslendingarnir í Magdeburg voru atkvæðamiklir í fjögurra marka sigri liðsins gegn HC Erlangen á heimavelli í dag, 35-31. Ómar Ingi Magnússon skoraði 14 mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði átta. Andri Már Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Erlangen. Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Magdeburg en Viggó Kristjánsson var ekki í leikmannahópi HC Erlangen.

Magdeburg er með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar með 52 stig, sjö stigum meira en Flensburg. HC Erlangen er í 13.sæti deildarinnar með 19 stig, jafn mörg stig og Eisenach.

Í lokaleik dagsins vann Füchse Berlin eins marka sigur á Lemgo á útivelli 33-34 eftir lygilegar lokasekúndur. Þrjú mörk voru skoruð á síðustu mínútu leiksins en Hendrik Wagner jafnaði metin fyrir Lemgo 10 sekúndum fyrir leikslok. Það dugði hinsvegar ekki til því Mathias Gidsel skoraði sigurmark leiksins og tryggði Füchse Berlin mikilvægan sigur í toppbaráttunni.

Lassen Andersson var markahæstur hjá Füchse Berlin með tíu mörk og Tim Freihofer skoraði sjö mörk. Fucshe Berlín er í 3.sæti deildarinnar með 44 stig en Lemgo er í 6.sætinu með 35 stig og hafa gefið eftir í undanförnum leikjum og einungis fengið eitt stig úr síðustu fimm leikjum sínum í deildinni.

Úrslit dagsins:

Hamborg - Kiel 27-34
Bergischer - Stuttgart 25-25
Magdeburg - Erlangen 35-31
Lemgo - Füchse Berlin 33-34

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top