

Dramatíkin heldur áfram í Ungverjalandi í sambandi við riftun Pick Szeged á samningi sænska landsliðsmannsins, Jim Gottfridsson á dögunum. Sænski landsliðsmaðurinn, Jim Gottfridsson greindi frá því í gærkvöldi að ungverska handknattleiksliðið Pick Szeged hafi rift þriggja ára samningi hans án fyrirvara. Í yfirlýsingu sinni segir hann ákvörðunina hafa komið sér algjörlega á óvart og að engar skýringar hafi fylgt. GOTTFRIDSSON SEGIR FARIR SÍNAR EKKI SLÉTTAR Ungverska félagið hefur hinsvegar svarað yfirlýsingu Svíans. Félagið hafnar gagnrýninni og heldur því fram að samningsriftunin hafi verið gerð á lögmætan hátt. Yfirlýsing Pick Szeged var stutt og hnitmiðuð: ,,Í tengslum við samningsriftun Jim Gottfridsson hefur félagið farið eftir gildandi lögum og í fullu samræmi við reglurnar. Félagið vill ekki tjá sig frekar um málið og mun einbeita sér að íþróttastarfinu og komandi leikjum."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.