
Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Fram sem gildir til tveggja ára. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum fyrir helgi. ,,Margrét er ein af okkar uppöldu stelpum sem hefur spilað mikið með Fram 2 í Grill66-deildinni í vetur, ásamt því að koma við sögu í nokkrum leikjum hjá okkur í Olís," segir í tilkynningunni frá Fram en þar segir jafnframt að Margrét sé þrælefnilegur vinstri hornamaður sem félagið hlakkar mikið til að fylgjast með vaxa á næstu misserum. ,,Margrét er í mikilli Fram-fjölskyldu og foreldrar hennar til að mynda stórtæk í starfinu hjá okkur í FRAM, þvert á íþróttir. Virkilega ánægjulegt að halda í Margréti áfram næstu tvö tímabil." Margrét skoraði 22 mörk fyrir Fram 2 í 18 leikjum í Grill66-deildinni í vetur en Fram 2 endaði í neðsta sæti deildarinnar með 13 stig, jafn mörg stig og Afturelding.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.