Ángæður með mikilvægan sigur í erfiðum leik
Ronny Hartmann / AFP

Gísli Þorgeir Kristjánsson var mikilvægur í sigri Magdeburg gegn HC Erlangen í gær þegar Magdeburg vann fjögurra marka sigur 35-31 en Gísli var næst markahæstur í liði Magdeburg í leiknum en sá markahæsti var Ómar Ingi Magnússon með 14 mörk.

Með sigrinum hélt Magdeburg áfram að safna stigum á toppi deildarinnar en liðið er með gott forskot á toppi deildarinnar og fátt sem bendir til annars en að Magdeburg verði Þýskalandsmeistarar í lok tímabils.

Gísli Þorgeir skoraði átta mörk úr átta skotum í leiknum.

,,Þetta var erfiður leikur í dag, ótrúlega erfiður, en líka ótrúlega mikilvægur. Erlangen spilaði ótrúlega vel. Þegar okkur tókst að skora hröð mörk varð þetta strax auðveldara. Svo komu nokkrar vörslur, og þá varð þetta enn betra…” sagði Gísli Þorgeir meðal annars við heimasíðu félagsins. 

Framundan eru bikarúrslitahelgi í Þýskalandi þar sem Magdeburg verður í eldlínunni en liðið mætir Arnóri Þór Gunnarssyni og lærisveinum hans í Bergischer í undanúrslitum á laugardaginn. Lemgo og Fuchse Berlínar mætast í hinum undanúrslitaleiknum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top