
KA/Þór hefur fengið til liðs við sig Ingibjörgu Lovísu Hauksdóttur, en Ingibjörg kemur norður frá norska félaginu Flint Tønsberg þar sem hún hefur spilað undanfarin 13 ár. ,,Ingibjörg er afar spennandi og öflugur markvörður sem mun klárlega styrkja okkar metnaðarfulla starf en KA/Þór sem lék sem nýliði í efstudeild á nýliðnum handboltavetri komst í undanúrslit í bikarnum auk þess að komast í sjálfa úrslitakeppnina," segir í tilkynningunni frá KA/Þór. Er henni ætlað að fylla skarð Bernadett Leiner markvarðar sem gekk í raðir KA/Þórs fyrir tímabilið en verður ekki áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð. Í tilkynningunni frá KA/Þór segir ennfremur að með Flint hafi Ingibjörg leikið í 2. deild auk U20 og U18 liðum félagsins. Flint situr sem stendur í 7. sæti í 2. deild og er liðið á leið í úrslitakeppni Norgesmesterskap í U19. Þá varð félagið bikarmeistari Austurlands í U20. Ingibjörg á einnig að baki landsleiki með 2006 landsliði Íslands og var meðal annars valin maður leiksins gegn Angólu á HM U18 sem fram fór sumarið 2024. ,,Við bjóðum Ingibjörgu hjartanlega velkomna í KA/Þór og hlökkum svo sannarlega til að sjá til hennar í KA-Heimilinu á komandi vetri."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.