Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sér í gær sæti á Evrópumótinu með öruggum átta marka sigri á Portúgal 32-24 fyrir framan troðfulla stúku á Ásvöllum. Eftir erfiða byrjun í leiknum sneri íslenska liðið leiknum sér í vil undir lok fyrri hálfleiks og vann að lokum sanngjarnan átta marka sigur. Með sigrinum er ljóst að Ísland verður á meðal þátttökuliða á Evrópumótinu sem hefst í byrjun desember en dregið verður í riðla á fimmtudaginn í þessari viku. Drátturinn fer fram í Katowice í Póllandi en Evrópumótið sjálft verður haldið víðs vegar um Evrópu, en auk Póllands verða leikir einnig spilaðir í Rúmeníu, Slóvakíu, Tékklandi og Tyrklandi. Alls taka 24 lið þátt í lokakeppninni og verður þeim skipt í sex fjögurra liða riðla. Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í milliriðla. Íslenska liðið verður í fjórða og neðsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn. Flokkarnir skiptast þannig: Styrkleikaflokkur 1: Noregur, Danmörk, Ungverjaland, Frakkland, Svíþjóð, Holland. Styrkleikaflokkur 2: Þýskaland, Svartfjallaland, Pólland, Rúmenía, Spánn, Tékkland. Styrkleikaflokkur 3: Tyrkland, Slóvakía, Slóvenía, Sviss, Austurríki, Færeyjar. Styrkleikaflokkur 4: Króatía, Serbía, Ísland, Norður-Makedónía, Úkraína og Grikkland.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.