
Francisco Costa var markahæstur í liði Sporting í sjö marka sigri liðsins gegn Aguas Santas í úrslitakeppninni í Portúgal í gær. Sporting hafði betur 36-29 eftir að hafa verið 19-15 yfir í hálfleik. Francisco Costa fór á kostum í leiknum og skoraði ellefu mörk fyrir Sporting. Orri Freyr Þorkelsson skoraði þrjú mörk í leiknum jafn mörg mörk og Martim Costa bróðir Kiko Costa. Sporting er á toppi fjögurra bestu liðanna í Portúgal með 39 stig, fimm stigum meira en Porto og sex stigum meira en Benfica.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.