
Mattý Rós gengur í raðið Mosfellinga fyrir næsta tímabil en hún hefur spilað með Víkingi frá 2023 en er uppalin í HK. Mattý er hornamaður og skoraði 24 mörk með Víkingum á nýafstöðnu tímabili. Í tilkynningu Aftureldingar segir að tilhlökkun sé fyrir því að sjá hana í rauðu treyjunni. Mattý er annar nýi leikmaðurinn sem Afturelding kynnir fyrir næsta tímabil en áður hafði félagið tilkynnt það að Andrea Ósk, línumaður, kæmi til félagsins en hún kemur einmitt líka frá Víking. Þá hafði Susan Ines framlengt samning sinn við félagið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.