Sjö ástæður afhverju Valsarar eiga að mæta á leikinn í kvöld
Egill Bjarni Friðjónsson

Björgvin Páll Gústavsson markvörður Vals skrifaði færslu á stuðningsmannasíðu Vals á Facebook, Fjósið þar sem hann nefnir sjö ástæður afhverju Valsarar ættu að mæta á leik liðsins í kvöld gegn KA í undanúrslitum Íslandsmótsins. Leikur Vals og KA hefst klukkan 19:00 í kvöld.

Valur leiðir í einvíginu 2-0 og getur með sigri í kvöld tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu en staðan er jöfn 1-1 í einvígi FH og Hauka sem mætast í þriðja leik einvígsins í Kaplakrika annað kvöld.

Samkvæmt Framundanibeinni.is verða leikirnir báðir sýndir í Handboltapassanum.

Hér að neðan má sjá þær sjö ástæður sem Björgvin Páll nefnir sem ástæður fyrir því að Valsmenn ættu að mæta á leikinn í kvöld. Í lokin nefnir hann að ef einhverjum vantar fleiri ástæður er þeim velkomið að senda línu á hann sjálfan.

Afhverju ættir þú að mæta á undanúrslitin hjá okkur í kvöld gegn KA?

- Af því að þú ert Valsari.

- Af því að við spilum hraðan og skemmtilegan handbolta.

- Af því að það eru ungir og uppaldir leikmenn í stórum hlutverkum í liðinu.

- Af því að KA er líka með geggjaða stuðningsmenn og munu fjölmenna.

- Af því að þetta er mánudagskvöld og þú hefur ekkert betra að gera.

- Af því að þú getur sleppt því að hafa kvöldmat og fengið þér Börger.

- Af því að við getum tryggt okkur í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn!

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top