Sögulegt jafntefli í þýsku Bundesligunni í gær
Tom Weller / AFP

Arnór Þór Gunnarsson og lærisveinar hans í Bergischer náðu í gott stig í fallbaráttunni þegar liðið tók á móti Stuttgart í gær. Liðin gerðu jafntefli 25-25 eftir að Stuttgart hafi leitt í hálfleik 10-13. Stuttgart hófu seinni hálfleikinn af krafti og komust í 17-12.

Bergischer náðu hinsvegar að koma til baka og jöfnuðu metin tveimur mínútum fyrir leikslok og reyndist það vera síðasta mark leiksins. Um var að ræða sjöunda jafntefli Stuttgart í þýsku deildinni í vetur.

Og það sem gerir jafnteflið í gær sögulegt er að Stuttgart var að gera sitt fjórða jafntefli í röð í deildinni sem jafnar met þriggja annara félaga sem einnig hafa gert fjögur jafntefli í röð í efstu deild í Þýskalandi.

Flest jafntefli í röð í sögu Bundesligunnar:
SG Leutershausen 1976-1977
HSG TuRU Düsseldorf 1992-1993
TV Großwallstadt - 4 2002-2003
TVB Stuttgart - 4 2025-2026

TVB Stuttgart mætir toppliði Magdeburg í næstu umferð, geri liðið jafntefli í þeim leik slær það metið í þýsku Bundesligunni yfir flest jafntefli í röð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top